Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 09. janúar 2020 13:33
Elvar Geir Magnússon
Sagt að West Ham sé búið að semja um Gedson Fernandes
Gedson Fernandes.
Gedson Fernandes.
Mynd: Getty Images
Sky Sports segir að West Ham sé búið að gera samkomulag um að fá Gedson Fernandes, miðjumann Benfica.

Um sé að ræða átján mánaða lánssamning en ekki sé neitt ákvæði um kaup.

Viðræður West Ham og Benfica hafa tekið margar stefnur þær vikur sem þær hafa staðið yfir.

Þessi tvítugi portúgalski landsliðsmaður vill spila í ensku úrvalsdeildinni og London er óskaáfangastaður af fjölskylduástæðum.

„Hann er ungur leikmaður sem getur orðið enn betri," segir David Moyes, stjóri West Ham, um Fernandes.

West Ham vill einnig fá Joe Allen frá Stoke og Sander Berge frá Genk.
Athugasemdir
banner
banner