Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 09. janúar 2020 10:00
Magnús Már Einarsson
West Ham ætlar að berjast við Chelsea um Fernandes
Mynd: Getty Images
West Ham hefur lagt fram nýtt tilboð í Gedson Fernandes, miðjuman Benfica.

West Ham hefur verið á eftir Fernandes undanfarnar vikur en í gær óskaði Chelsea eftir að fá leikmanninn á láni í eitt og hálft ár.

Stjórnarfundur er fyrirhugaður hjá Benfica í dag þar sem tilboðin verða skoðuð.

Bæði West Ham og Chelsea vilja fá hinn tvítuga Fernandes á láni til að byrja með.

Talið er að Benfica vilji frekar lána Fernandes til West Ham þar sem meiri líkur eru á að hann spili þar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner