Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 09. febrúar 2019 17:07
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Championship: Jón Daði kom inn á - Reading áfram í fallsæti
Mynd: Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir
Jón Daði Böðvarsson lék síðustu mínúturnar í leik Sheffield Wednesday og Reading í Championship-deildinni í dag.

Jón Daði hefur ekki verið í hóp hjá Reading í síðustu leikjum en hann sneri aftur í dag og kom inn á sem varamaður á 79. mínútu. Hann átti líklega að reyna að læða inn marki, en tókst ekki að gera það. Leikurinn endaði 0-0.

Reading er áfram í fallsæti, einu stigi frá öruggu sæti.

Leeds er á toppnum eftir dramatískt jafntefli fyrr í dag.

Lokaleikur dagsins í Championship-deildinni er leikur Stoke og West Brom klukkan 17:30.

Hér að neðan eru úrslitin í þeim leikjum sem voru að klárast.

Blackburn 0 - 1 Bristol City
0-1 Eros Pisano ('80 )

Bolton 1 - 2 Preston NE
0-1 Alan Browne ('40 )
0-2 Tom Barkhuizen ('82 )
1-2 Clayton Donaldson ('90 )

Derby County 2 - 0 Hull City
1-0 Martyn Waghorn ('41 )
2-0 Martyn Waghorn ('71 )

Middlesbrough 1 - 1 Leeds
1-0 Lewis Wing ('47 )
1-1 Kalvin Phillips ('90 )

Nott. Forest 2 - 1 Brentford
1-0 Lewis Grabban ('16 )
2-0 Molla Wague ('80 )
2-1 Sergi Canos ('89 )

QPR 3 - 4 Birmingham
0-1 Che Adams ('21 )
0-2 Che Adams ('27 )
0-3 Harlee Dean ('36 )
0-4 Che Adams ('42 )
1-4 Matt Smith ('45 )
2-4 Matt Smith ('48 )
3-4 Jordan Cousins ('80 )

Rotherham 1 - 1 Wigan
1-0 Clark Robertson ('29 )
1-1 Josh Windass ('32 )

Sheffield Wed 0 - 0 Reading

Swansea 1 - 0 Millwall
1-0 George Byers ('43 )
Athugasemdir
banner
banner
banner