Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 09. febrúar 2019 13:12
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hugarfar Dembele breyst til hins betra
Ousmane Dembele.
Ousmane Dembele.
Mynd: Getty Images
Ousmane Dembele hefur verið mikið til umræðu undanfarnar vikur. Hann var í vandræðum utan vallar.

Hann hefur verið að glíma við tölvuleikjafíkn sem hefur verið að halda honum vakandi á næturnar. Það olli því að hann mætti seint á æfingar.

Dembele er búinn að taka sig á, en þetta segir spænski blaðamaðurinn Ramon Salmurri.

Hann segir í samtali við Tot costa, útvarpsþátt hjá CatalunyaRadio, sé að gera allt það sem Barcelona biður hann um, hann sé jafnvel orðinn fyrirmynd fyrir aðra leikmenn þegar kemur að aukaæfingum.

Dembele er 21 árs og á svo sannarlega framtíðina fyrir sér ef hann heldur sér á beinu brautinni. Hann var keyptur til Barcelona frá Borussia Dortmund fyrir síðustu leiktíð. Hann gæti kostað Barcelona allt að 150 milljónum evra.


Athugasemdir
banner
banner
banner