Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 09. júní 2022 11:00
Elvar Geir Magnússon
Hefði ekki yfirgefið Chelsea fyrir neitt annað félag
Antonio Rudiger.
Antonio Rudiger.
Mynd: Getty Images
Real Madrid staðfesti í síðustu viku samning við þýska varnarmanninn Antonio Rudiger sem kemur á frjálsri sölu frá Chelsea.

„Ég fékk mörg tilboð en skoðaði bara Real Madrid og Chelsea. Carlo Ancelotti hringdi í mig til að segja mér hversu ánægður hann og leikmannahópurinn væru með það að ég væri að koma," segir Rudiger við Marca.

Real Madrid sló Chelsea út úr Meistaradeildinni á síðasta tímabili og fór svo alla leið og vann keppnina. Þá vann liðið einnig Spánarmeistaratitilinn.

Sjálfur vann Rudiger Meistaradeildina með Chelsea 2021.

Hann er 29 ára gamall og hefur spilað 52 landsleiki fyrir Þýskaland. Hann kemur inn með reynslu í varnarlínu Madrídinga.
Athugasemdir
banner
banner