Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fim 09. júní 2022 10:00
Elvar Geir Magnússon
Tchouameni skrifar undir hjá Real Madrid í næstu viku
Mynd: Getty Images
Það er nánast allt klárt fyrir kaup Real Madrid á miðjumanninum Aurelien Tchouameni frá Mónakó. Félögin tvö eru búin að gera samkomulag og leikmaðurinn búinn að samþykkja samning.

Hann á nú bara eftir að fara í seinni hluta læknisskoðunar hjá Evrópu- og Spánarmeisturunum og skrifa nafnið sitt undir samninginn. Það verður gert í næstu viku þegar Tchouameni er búinn í landsliðsverkefni með Frakklandi.

Tchouameni er 22 ára og bætist í ansi veglegan hóp miðjumanna hjá Real Madrid. Fyrir eru þeir Luka Modric, Toni Kroos, Casemiro, Fede Valverde og Eduardo Camavinga. Öflug blanda af gæðum, reynslu og yngri ferskleika.
Athugasemdir
banner
banner