Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 09. júní 2022 21:10
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Þjóðadeildin: Allt eftir bókinni í A-deild - Svíar töpuðu heima
Bernardo Silva lagði upp tvö mörk.
Bernardo Silva lagði upp tvö mörk.
Mynd: EPA
Það var mikill fjöldi leikja í Þjóðadeildinni í kvöld. Í A-deild voru úrslitin eftir bókinni.

Bernardo Silva lagði upp bæði mörk Portúgal í sigri gegn Tékklandi á heimavelli og í sama riðli skoraði Pablo Sarabia sigurmark Spánverja gegn Sviss.

Eftir þrjá leiki í þessum riðli er Portúgal með sjö stig, Spánn með fimm stig, Tékkland er með fjögur og Sviss er á botninum án stiga.

Í B-deildinni tapaði Noregur sínum fyrstu stigum er þeir gerðu markalaust jafntefli við Slóveníu á heimavelli. Norðmenn voru einum manni fleiri í meira en hálftíma en tókst ekki að nýta sér liðsmuninn. Í sama riðli vann Serbía útisigur á Svíþjóð, 0-1.

Þá voru óvænt úrslit í C-deild er Georgía burstaði Norður-Makedóníu en öll úrslitin má sjá hér fyrir neðan.

A-deild
Portúgal 2 - 0 Tékkland
1-0 Joao Cancelo ('33 )
2-0 Goncalo Guedes ('38 )

Sviss 0 - 1 Spánn
0-1 Pablo Sarabia ('13 )

B-deild
Noregur 0 - 0 Slóvenía
Rautt spjald: Miha Blazic, Slovenia ('63)

Svíþjóð 0 - 1 Serbía
0-1 Luka Jovic ('45 )

C-deild
Kosóvó 3 - 2 Norður-Írland
1-0 Vedat Muriqi ('9 , víti)
2-0 Sinan Bytyqi ('19 )
2-1 Shayne Lavery ('45 )
3-1 Vedat Muriqi ('52 )
3-2 Daniel Ballard ('83 )

Grikkland 3 - 0 Kýpur
1-0 Anastasios Bakasetas ('8 )
2-0 Vangelis Pavlidis ('20 )
3-0 Dimitris Limnios ('48 )

Gíbraltar 1 - 1 Búlgaría
0-1 Georgi Minchev ('45 )
1-1 Liam Walker ('61 , víti)

Norður-Makedónía 0 - 3 Georgía
0-1 Budu Zivzivadze ('52 )
0-2 Khvicha Kvaratskhelia ('62 )
0-3 Otari Kiteishvili ('84 )

D-deild
Malta 1 - 2 Eistland
0-1 Konstantin Vassiljev ('21 )
0-2 Karl Hein ('56 , sjálfsmark)
0-3 Henri Anier ('90 )
Athugasemdir
banner
banner
banner