Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingkona Sjálfstæðisflokksins var að vonum himinlifandi með 2-0 sigur Íslands á Kósóvó í kvöld. Sigurinn tryggði Íslandi farseðil á heimsmeistaramótið í Rússlandi næsta sumar.
„Þetta var alveg magnað kvöld. Vá maður er bara orðlaus," sagði Áslaug Arna.
„Þetta hlýtur að vera eitt af þeim. Það er alveg magnað að komast á HM. Strákarnir sönnuðu það fyrir íslensku þjóðinni að þetta var engin heppni í fyrra," sagði Áslaug þegar hún var spurð hvort þetta væri stærsta íþróttaafrek sögunnar hér á Íslandi.
Áslaug viðurkennir að hún hafi verið þónokkuð stressuð í stöðunni 0-0 í fyrri hálfleik.
„Maður þorði ekki að jinxa þetta. Maður var orðinn ansi stressaður. Það hefði verið leiðinlegt að hafa þetta í höndunum á öðrum liðum en þetta var ótrúlega fallegt og ég vona að Íslendingar njóti kvöldsins. Svo verða bara allir í Rússlandi á næsta ári."
Áslaug ætlar að skella sér til Rússland næsta sumar þegar Ísland leikur á heimsmeistaramótinu.
„Maður getur ekki annað en látið sjá sig þar. Sumarfríið fer til Rússlands."

Athugasemdir