Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mið 09. nóvember 2022 09:58
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Conor McGregor myndi elska að kaupa Liverpool
Conor McGregor
Conor McGregor
Mynd: Twitter
UFC stjarnan Conor McGregor segist hafa óskað eftir upplýsingar sem snúa að mögulegum kaupum á Liverpool.

FSG setti félagið til sölu og er hægt að kaupa það fyrir fjóra milljarða punda.

Írski bardagakappinn hefur ekki barist í rúmt ár og hefur verið að láta til sín taka í viðskiptalífinu.

McGregor er þekktur sem stuðningsmaður Manchester United. Hann var spurður á Twitter í gær hvort hann hefði áhuga á því að kaupa félagið.

„ÉG MYNDI ELSKA ÞAÐ!" skrifaði McGregor.

Hrein eign McGregor eru 200 milljónir dollara og því þyrfti hann að finna sér ansi fjársterka aðila með sér ef kaup á Liverpool ættu að verða að veruleika.

Sjá einnig:
Ratcliffe ætlar ekki að kaupa Liverpool


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner