Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 10. janúar 2020 11:32
Magnús Már Einarsson
Tosun í læknisskoðun hjá Crystal Palace
Mynd: Getty Images
Cenk Tosun, framherji Everton, er á leið í læknisskoðun hjá Crystal Palace en hann er á leið til félagsins á láni út tímabilið.

HInn 28 ára gamli Tosun er með yfir 100 þúsund pund í laun á viku og Everton vill lána hann til að létta á launakostnaði.

Tosun var nálægt því að fara til Crystal Palace frá Besiktas árið 2017 en þá klikkuðu skiptin á síðustu stundu.

Tosun hefur skorað eitt mark í fimm leikjum í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu.

Ellefu leikmenn eru á meiðslalistanum hjá Crystal Palace og Roy Hodgson, stjóri félagsins, vill bæta leikmönnum við hópinn í þessum mánuði.
Athugasemdir
banner
banner