Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   sun 10. febrúar 2019 21:33
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: Piatek skoraði í auðveldum sigri
Mynd: Getty Images
Milan 3 - 0 Cagliari
1-0 Luca Ceppitelli ('13 , sjálfsmark)
2-0 Lucas Paqueta ('22 )
3-0 Krzysztof Piatek ('62 )

Krzysztof Piatek hefur farið feykilega vel af stað með AC Milan og skoraði hann aftur í auðveldum 3-0 sigri liðsins gegn Cagliari í kvöld.

Heimamenn í Mílanó voru tveimur mörkum yfir í hálfleik en Lucas Paqueta skoraði annað þeirra. Þetta var fyrsta mark Paqueta fyrir Milan en hann kom einnig til félagsins í janúar, rétt eins og Piatek.

Piatek skoraði svo eina markið í síðari hálfleik og innsiglaði þannig sigurinn.

Milan endurheimti Meistaradeildarsæti með sigrinum og er einu stigi fyrir ofan Roma, Lazio og Atalanta sem unnu öll sína leiki um helgina.
Athugasemdir
banner