Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 10. mars 2021 22:38
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Klopp: Þeir eru skrímsli vanalega
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool.
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool.
Mynd: Getty Images
„Miðverðirnir tveir spiluðu ótrúlega vel," sagði Jurgen Klopp eftir 2-0 sigur gegn RB Leipzig í Meistaradeildinni í kvöld. Liverpool er komið áfram í 8-liða úrslit.

„Öll varnarlínan spilaði ótrúlega vel því þeir fengu erfitt verkefni. Við urðum að pressa þá. Við vörðumst mjög vel saman aftarlega á vellinum sem var mikilvægt. Allir áttu mjög góðan leik, þetta var góð frammistaða."

Það hefur ekki gengið vel hjá Liverpool heima fyrir í ensku úrvalsdeildinni en Klopp telur að þessi sigur skipti miklu máli.

„Það stærsta og besta sem við gerðum í dag var það að við leyfðum engum að sjá hversu góðir Leipzig geta verið. Þeir eru skrímsli vanalega, þeir eru svo kraftmiklir og þið sáuð öll hlaupin aftur fyrir en við vörðumst mjög vel."

„Við urðum að hætta að hugsa um ensku úrvalsdeildina. Strákarnir nutu sín í kvöld sem er mikilvægt."

„Ef við spilum eins og við gerðum í kvöld á mánudaginn, þá verður það ekki auðvelt fyrir Wolves."
Athugasemdir
banner
banner
banner