Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   sun 10. maí 2020 21:10
Brynjar Ingi Erluson
Milan hafnar tilboði PSG í Bennacer
Ismael Bennacer gæti farið til Frakklands í sumar
Ismael Bennacer gæti farið til Frakklands í sumar
Mynd: Getty Images
Ítalska félagið AC Milan hefur hafnað 30 milljón evra tilboði Paris Saint-Germain í Ismael Bennacer. Þetta kemur fram á Le10Sport.

Bennacer var valinn besti leikmaður Afríkumótsins á síðasta ári er Alsír vann keppnina áður en hann gekk til liðs við Milan frá Empoli.

Bennacer hefur verið í lykilhlutverki á miðsvæðinu hjá Milan en hann gæti verið á förum.

Samkvæmt Le10Sport þá hafnaði Milan 30 milljón evra tilboði PSG í leikmanninn.

Talið er að Milan vilji að minnsta kosti 40 milljónir evra fyrir þennan 22 ára gamla leikmann.
Athugasemdir
banner
banner
banner