Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 10. júní 2022 05:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Þjóðadeildin um helgina - England hefur harma að hefna
Englendingar töpuðu í úrslitaleik EM.
Englendingar töpuðu í úrslitaleik EM.
Mynd: EPA
Það verða fjölmargir leikir spilaðir í Þjóðadeildinni núna um helgina.

Ísland leikur sinn síðasta leik í þessum landsleikjaglugga er við fáum Ísrael í heimsókn á Laugardalsvöll á mánudag, en hér að neðan má sjá hvaða leikir eru frá föstudegi til sunnudags.

Það ber hæst að England og Ítalía, liðin sem mættust í úrslitaleik Evrópumótsins síðasta sumar, eigast við á morgun. Ítalir fóru með sigur af hólmi í úrslitaleik EM eftir vítaspyrnukeppni og hafa Englendingar harma að hefna.

Albanía og Ísrael mætast í riðli okkar Íslendinga í kvöld og nágrannaþjóðirnar Noregur og Svíþjóð mætast á sunnudaginn. Alla leikina má sjá hér að neðan.

föstudagur 10. júní

UEFA NATIONS LEAGUE A: Group Stage
18:45 Austurríki - Frakkland
18:45 Danmörk - Króatía

UEFA NATIONS LEAGUE B: Group Stage
18:45 Albanía - Israel

UEFA NATIONS LEAGUE C: Group Stage
16:00 Azerbaijan - Slóvakía
18:45 Hvíta Rússland - Kasakstan

UEFA NATIONS LEAGUE D: Group Stage
16:00 Moldova - Lettland
18:45 Andorra - Liechtenstein

laugardagur 11. júní

UEFA NATIONS LEAGUE A: Group Stage
18:45 England - Ítalía
18:45 Ungverjaland - Þýskaland
18:45 Holland - Pólland
18:45 Wales - Belgía

UEFA NATIONS LEAGUE B: Group Stage
13:00 Úkraína - Armenia
16:00 Írland - Skotland
18:45 Montenegro - Bosnia Herzegovina
18:45 Rúmenía - Finnland

UEFA NATIONS LEAGUE C: Group Stage
16:00 Færeyjar - Litháen
18:45 Luxembourg - Tyrkland

sunnudagur 12. júní

UEFA NATIONS LEAGUE A: Group Stage
18:45 Spánn - Tékkland
18:45 Sviss - Portúgal

UEFA NATIONS LEAGUE B: Group Stage
16:00 Noregur - Svíþjóð
18:45 Slovenia - Serbía

UEFA NATIONS LEAGUE C: Group Stage
13:00 Norður Írland - Kýpur
16:00 Georgia - Bulgaria
16:00 Norður Makedónía - Gibraltar
18:45 Grikkland - Kósóvó

UEFA NATIONS LEAGUE D: Group Stage
18:45 Malta - San Marino
Athugasemdir
banner
banner