Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 10. júlí 2019 12:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Allir klárir í þessa báta" hjá Valsmönnum
Mynd: Hulda Margrét
Valur mætir slóvensku meisturunum í Maribor í fyrstu umferð forkeppni Meistaradeildarinnar í kvöld.

Leikurinn hefst klukkan 20:00 og verður í beinni textalýsingu hérna á Fótbolta.net.

Sigurbjörn Hreiðarsson, aðstoðarþjálfari Vals, segir að það séu allir klárir í slaginn fyrir leikinn gegn Maribor á Hlíðarenda.

„Hvort það er ekki bara þannig. Staðan verður tekin endanlega í fyrramálið," sagði Sigurbjörn við Fótbolta.net í gær. „Annars eru allir klárir í þessa báta. Það eru 1-2 að glíma við eitthvað smávægilegt, en það er ekki neitt, neitt. Það eru allir klárir í þetta."

Sjá einnig:
Haukur Páll: Þeir líklegri en það getur allt gerst í fótbolta
Sigurbjörn telur forskotið lítið sem ekkert: Eru þaulvanir þessu
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner