Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 10. júlí 2021 18:11
Victor Pálsson
Noregur: Viðar skoraði í sigri á Sandefjord
Mynd: Sandefjord
Viðar Ari Jónsson skoraði fyrir lið Sandefjord í dag sem fékk Sarpsborg í heimsókn í norsku úrvalsdeildinni.

Viðar var í byrjunarliði Sandefjord en hann kom boltanum í netið á 32. mínútu í leik sem lauk með 2-0 sigri.

Emil Pálsson var í byrjunarliði Sarpsborg en hann fékk gult spjald í viðureigninni og fór af velli í síðari hálfleik.

Annar Íslendingaslagur fór fram á heimavelli Viking þar sem heimaliðið mætti Stromsgodset.

Samúel Kári Friðjónsson lék með Viking í þessu 1-1 jafntefli og Ari Leifsson var í byrjunarliði Stromsgodset. Ari spilaði allan leikinn en Samúel fór af velli undir lok leiks.

Brynjólfur Darri Willumsson kom þá inná sem varamaður á 86. mínútu er Kristiansund tapaði 1-0 gegn Rosenborg.
Athugasemdir
banner
banner