Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 10. september 2021 19:31
Victor Pálsson
Annar leikmaður Barcelona tekur á sig launalækkun
Mynd: Getty Images
Sergi Roberto, leikmaður Barcelona, er búinn að samþykkja það að taka á sig launalækkun á Nou Camp.

Nú á Roberto aðeins eftir að skrifa undir samninginn sjálfan að sögn Joan Laporta, forseta félagsins.

Þessi 29 ára gamli leikmaður fetar í fótspor Gerard Pique, Jordi Alba og Sergio Busquets sem tóku á sig launalækkun til að hjálpa Barcelona.

Roberto hefur allan sinn feril leikið í Barcelona og hefur skorað tvö mörk á þessari leiktíð.

„Þetta er allt að klárast og samkomulag er í höfn. Það þarf bara að skrifa undir," sagði Laporta.

„Það þarf bara að skrifa undir síðustu skjölin. Eins og aðrir fyrirliðar þá hefur Sergi staðið við bakið á liðinu."
Athugasemdir
banner
banner
banner