Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 10. september 2021 21:54
Victor Pálsson
Gefur í skyn að West Ham gæti enn reynt við Lingard
Mynd: Getty Images
Stuart Pearce, aðstoðarþjálfari West Ham, hefur gefið í skyn að Jesse Lingard gæti enn samið við félagið í janúar.

West Ham fékk Lingard lánaðan frá Manchester United á síðasta tímabili og reyndi aftur við hann í sumarglugganum.

Lingard varð hins vegar að lokum áfram á Old Trafford þar sem tækifærin verða líklega afar fá á næstu mánuðum.

„Hann missti af tækifærinu að yfirgefa Man Utd í þessum glugga," sagði Pearce við TalkSport.

„Hann getur skoðað stöðuna í janúar og þá ákveðið hvort það sé tækifæri að semja við annað lið. Hann heldur á öllum spilunum."

„Ég tel hann vera alltof góðan leikmann til að sitja á bekknum og hann er á aldri þar sem hann þarf að spila."

Athugasemdir
banner
banner