Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 11. febrúar 2019 09:18
Magnús Már Einarsson
Aron: Þetta hefur verið mjög erfitt
Mynd: Getty Images
„Síðustu tvær vikur hafa látið okkur vera samheldnari sem heild. Ég stóð og horfði á stuðningsmennina eftir síðasta heimaleik og þá sá maður hvernig félag þetta er," sagði Aron Einar Gunnarsson eftir sigur Cardiff á Southampton á laugardag.

Cardiff vann dramatískan sigur í botnbaráttunni en Kenneth Zohore skoraði sigurmarkið á 93. mínútu. Síðustu vikur hafa verið erfiðar hjá Cardiff eftir að Emiliano Sala létst í flugslysi.

„Þetta var tilfinningaríkt í lokin. Það er búið að finna Sala og það var mikilvægast til að fjölskylda hans gæti fengið að syrgja. Vonandi finnst flugmaðurinn líka svo fjölskylda hans getið fengið að syrgja."

„Þetta hefur verið erfitt en við stóðum saman og í dag (á laugardag) eftir leik sagði stjórinn 'Þessi sigur var fyrir Sala."

„Síðustu tvær vikurnar hafa fengið alla til að vinna saman. Stuðningsmennirnir, strákarnir og allir í kringum félagið hafa staðið sig ótrúlega vel á þessum erfiðu tímum. Þetta hefur verið mjög erfitt en strákarnir hafa staðið saman eins og allir hjá félaginu."

Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Man City 33 23 7 3 80 32 +48 76
3 Liverpool 34 22 8 4 75 34 +41 74
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Man Utd 33 16 5 12 51 50 +1 53
7 Newcastle 33 15 5 13 69 54 +15 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Bournemouth 34 12 9 13 49 60 -11 45
11 Brighton 33 11 11 11 52 54 -2 44
12 Wolves 34 12 7 15 46 54 -8 43
13 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
14 Crystal Palace 34 10 9 15 44 56 -12 39
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 34 11 8 15 36 48 -12 33
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 34 3 7 24 33 92 -59 16
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner