Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fim 11. mars 2021 18:00
Ívan Guðjón Baldursson
Tristan Freyr framlengir við Stjörnuna
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tristan Freyr Ingólfsson er búinn að framlengja samning sinn við Stjörnuna en hann hefur spilað einn keppnisleik fyrir meistaraflokk.

Tristan Freyr er fæddur 1999 og kom við sögu í einum leik í Mjólkurbikarnum í fyrra.

Hann er fjölhæfur leikmaður sem spilaði sex leiki með Keflavík í Lengjudeildinni í fyrra en þar áður var hann lykilmaður í liði KFG í 2. deild.

„Tristan er öflugur og afar spennandi leikmaður sem við höfum trú á til framtíðar en hann hefur verið að stíga töluvert upp og verið í ákveðinni þróun sem virðist vera að skila sér," sagði Helgi Hrannarr Jónsson, formaður meistaraflokks karla.

„Við hlökkum til að fylgjast með honum á komandi árum."
Athugasemdir
banner
banner