Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 11. maí 2021 14:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Zlatan meiddur - „Sjáum til með næstu viku"
Mynd: Getty
Zlatan Ibrahimovic meiddist í 0-3 útisigri AC Milan gegn Juventus á sunnudag. Það er áfall fyrir AC í baráttunni um Meistaradeildarsæti.

Zlatan verður ekki með í leikjunum gegn Torino og Cagliari, um hnémeiðsli er að ræða. Zlatan hefur skorað fimmtán deildarmörk og lagt upp tvö á tímabilinu.

„Sjáum til með næstu viku," sagði Stefano Pioli, aðalþjálfari Milan, á blaðamannafundi.

Milan mætir Torino á morgun og Cagliari á sunnudag. Hann gæti náð lokaleik tímabilsins þegar Milan mætir Atalanta í mögulegum úrslitaleik um Meistaradeildarsæti.

Milan er í þriðja sæti deildarinnar og berst við Lazio, Juventus, Atalanta og Napoli um að vera eitt af þremur liðum sem fylgja Inter Milan í Meistaradeildina.
Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 33 27 5 1 79 18 +61 86
2 Milan 33 21 6 6 64 39 +25 69
3 Juventus 33 18 10 5 47 26 +21 64
4 Bologna 33 17 11 5 48 26 +22 62
5 Roma 33 17 7 9 59 39 +20 58
6 Atalanta 32 16 6 10 59 37 +22 54
7 Lazio 33 16 4 13 42 35 +7 52
8 Napoli 33 13 10 10 50 41 +9 49
9 Fiorentina 32 13 8 11 45 36 +9 47
10 Torino 33 11 13 9 31 29 +2 46
11 Monza 33 11 10 12 35 43 -8 43
12 Genoa 33 9 12 12 35 40 -5 39
13 Lecce 33 8 11 14 30 48 -18 35
14 Cagliari 33 7 11 15 36 56 -20 32
15 Verona 33 7 10 16 31 44 -13 31
16 Empoli 33 8 7 18 26 48 -22 31
17 Udinese 33 4 16 13 31 50 -19 28
18 Frosinone 33 6 10 17 40 63 -23 28
19 Sassuolo 33 6 8 19 39 65 -26 26
20 Salernitana 33 2 9 22 26 70 -44 15
Athugasemdir
banner
banner