Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 11. maí 2022 08:30
Elvar Geir Magnússon
70 þúsund áhorfendur á úrslitaleik unglingabikarsins
Alvaro Fernandez og Alejandro Garnacho, leikmenn Manchester United.
Alvaro Fernandez og Alejandro Garnacho, leikmenn Manchester United.
Mynd: Getty Images
Þetta hefur verið afleitt tímabil fyrir aðallið Manchester United en það er þó jákvætt andrúmsloft á Old Trafford fyrir úrslitaleik FA-unglingabikarsins sem fram fer í kvöld.

Metfjöldi áhorfenda mun mæta á þennan leik milli unglingaliða Manchester United og Nottingham Forest. Um 70 þúsund miðar hafa þegar verið seldir á Old Trafford.

Manchester United hefur ekki orðið bikarmeistari unglingaliða síðan 2011 en þá voru Paul Pogba, Ravel Morrison og Jesse Lingard meðal leikmanna.

„Ég er hæstánægður með að svona margir stuðningsmenn muni mæta og vonandi verður þetta fallegt kvöld og þeir geta verið stoltir af félaginu," segir Nick Cox sem er yfir akademíu United.
Athugasemdir
banner
banner