Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 11. júní 2022 09:00
Brynjar Ingi Erluson
Beckham svaraði spurningum Neville - „Ég var skírður í höfuðið á Bobby Charlton"
David Beckham og Gary Neville á góðri stundu
David Beckham og Gary Neville á góðri stundu
Mynd: EPA
David Beckham var gestur hjá besta vini sínum, Gary Neville, á Sky Sports á dögunum en hann fékk þar að svara spurningalista sem Gary hafði sett saman.

Beckham og Neville voru saman í hinum alfræga 1992 árgangi hjá Manchester United.

Þeir voru límdir saman hjá United áður en Beckham fór á vit ævintýranna árið 2003 og samdi við Real Madrid.

Þeir hafa haldið góðu sambandi og stundað viðskipti saman en þeir hittust á dögunum til að gera innslag fyrir Sky Sports en Neville spurði hann að 29 spurningum.

Þar kemur Beckham inn á það að hann er skírður að hluta til í höfuðið á Sir Bobby Charlton, fyrrum leikmanni United og enska landsliðsins, en Beckham heitir fullu nafni David Robert Joseph Beckham. Faðir Beckham er mikill aðdáandi Charlton og varð því Robert að fylgja í nafni sonarins. Hægt er að sjá innslagið í heild sinni hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner