Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 11. júlí 2018 16:00
Elvar Geir Magnússon
Umboðsmaður Darmian fundar með Juventus
Matteo Darmian.
Matteo Darmian.
Mynd: Getty Images
Forráðamenn Juventus hafa fundað í dag með umboðsmanni Matteo Darmian, varnarmanns Manchester United.

Juventus vill fá leikmanninn en United hefur sett 20 milljóna evra verðmiða á hann. Það ber mikið á milli í viðræðum félagana og sagt að Ítalíumeistararnir séu ekki tilbúnir að fara yfir 12-13 milljónir evra.

Svo gæti farið að ekkert myndi gerast í málum nema Juventus ákveði að selja Alex Sandro í sumar.

Fabio Paratici, íþróttastjóri Juventus, hefur fundað með Tullio Tinti, umboðsmanni Darmian, á hóteli í Mílanó í dag.
Athugasemdir
banner
banner
banner