Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
   þri 11. september 2018 18:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Albert Guðmunds: Gæti eiginlega ekki orðið svekktari
Albert í leiknum.
Albert í leiknum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Að sjálfsögðu er ég svekktur. Ég gæti eiginlega ekki orðið svekktari," sagði Albert Guðmundsson, fyrirliði U21 landsliðsins eftir 3-2 tap gegn Slóvakíu í leik sem var í undankeppni EM í kvöld.

Lestu um leikinn: Ísland U21 2 -  3 Slóvakía U21

Albert, sem var að spila á sínum gamla heimavelli í Vesturbæ, skoraði bæði mörk Íslands í leiknum. Sigurmark Slóvakíu kom alveg undir lokin og var það markvörður liðsins sem skoraði það eftir hornspyrnu. Vonir U21 landsliðsins að komast í lokakeppni EM urðu að engu eftir þetta tap í dag.

„Mér fannst við ekki halda boltanum nógu vel. Í rauninni varð það okkur að falli að ná ekki að byggja upp nægilega gott spil, sérstaklega í fyrri hálfleiknum."

Undir lok leiksins fékk Ísland fullt af færum áður en Albert jafnaði úr vítaspyrnu þegar uppbótartíminn var nýhafinn. Slóvakía komst fljótlega aftur yfir og tryggði sér sigurinn með, eins og áður segir, marki frá markverði liðsins.

„Hefðum við klárað okkar og færi og ég tala þá ekki um tækifærið sem ég fékk áður en þeir komast í 2-1, þá hefði þessi leikur fallið allt öðruvísi. Því miður þá féll þetta fyrir Slóvakana í kvöld."

Viðtalið er í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner