Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 11. desember 2018 11:00
Magnús Már Einarsson
Gullskórinn á toppnum á jólatré Kane
Mynd: Getty Images
Harry Kane og eiginkona hans Kate Goodland eru komin í jólaskap en þau eru búin að henda jólatré upp heima hjá sér.

Skrautið á jólatrénu er einstakt því á toppnum er gullskór sem Kane fékk fyrir að vera markakóngur á HM í sumar.

Kane skoraði sex mörk á HM og var með tveimur mörkum meira en næstu menn.

Kane á fleiri gullskó heima hjá sér því hann var einnig markakóngur í ensku úrvalsdeildinni tvö tímabil í röð 2015/2016 og 2016/2017.

Á þessu tímabili hefur Kane haldið áfram að skora en hann er með 14 mörk í 26 leikjum með Tottenham og enska landsliðinu.

Hér má sjá jólatréð hjá Kane og Kate en hún birti mynd af því á Instagram.

Athugasemdir
banner
banner
banner