Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 12. janúar 2023 21:47
Brynjar Ingi Erluson
Holland: Blikar eiga fjóra fulltrúa í 16-liða úrslitum bikarsins
Willum Þór Willumsson er fjórði Blikinn sem fer í 16-liða úrslitin þetta tímabilið
Willum Þór Willumsson er fjórði Blikinn sem fer í 16-liða úrslitin þetta tímabilið
Mynd: Go Ahead Eagles
Willum Þór Willumsson og hans menn í Go Ahead Eagles eru komnir áfram í 16-liða úrslit hollenska bikarsins eftir 1-0 sigur á Heracles í kvöld.

Blikinn hefur verið með allra bestu mönnum Eagles síðan hann kom til félagsins frá BATE Borisov síðasta sumar.

Hann var í byrjunarliðinu hjá Eagles í kvöld líkt og í öðrum leikjum en fór af velli á 89. mínútu.

Það verða því fjórir Blikar í 16-liða úrslitunum í bikarnum þetta árið en Kristian Nökkvi Hlynsson, Alfons Sampsted og Andri Fannar Baldursson eru allir komnir þangað.

Andri Fannar er á láni hjá NEC Nijmegen frá Bologna á meðan Kristian Nökkvi Hlynsson er á mála hjá Ajax. Hann var ónotaður varamaður í sigri liðsins í gær og þá spilaði Alfons í sigri Twente á Telstar.
Athugasemdir
banner
banner