Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 12. mars 2021 20:12
Brynjar Ingi Erluson
Holland: Elías Már kom inná í sigri - Kristófer í byrjunarliði Jong PSV
Kristófer Ingi byrjaði í tapi PSV
Kristófer Ingi byrjaði í tapi PSV
Mynd: Getty Images
Elías Már Ómarsson og félagar hans í Excelsior í hollensku B-deildinni unnu góðan 2-0 sigur á B-liði Utrecht í kvöld.

Elías Már, sem hefur verið magnaður með Excelsior á leiktíðinni, var óvænt á bekknum fyrir leik kvöldsins en hann hefur átt erfitt uppdráttar í fremstu víglínu í undanförnum leikjum.

Hann kom inná á 82. mínútu í kvöld í 2-0 sigrinum en Excelsior er nú í 9. sæti með 36 stig, níu stigum frá umspilssæti.

Kristófer Ingi Kristinsson var þá í byrjunarliði hjá unglinga- og varaliði PSV sem tapaði fyrir NEC Nijmegen, 2-0. Hann fór af velli á 66. mínútu en þetta var fyrsti byrjunarliðsleikur hans í deildinni síðan um miðjan janúar.

Hann er með 6 mörk í deildinni fyrir PSV á meðan Elías Már er með 18 mörk.
Athugasemdir
banner
banner
banner