Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fös 12. mars 2021 11:22
Magnús Már Einarsson
Meistaradeildin: Karolína og Glódís mætast - Sara gegn PSG
Glódís Perla Viggósdóttir
Glódís Perla Viggósdóttir
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Búið er að draga í 8-liða og undanúrslit í Meistaradeild kvenna og Íslendingaslagur verður í 8-liða úrslitum.

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, miðjumaður Bayern Munchen, og Glódís Perla Viggósdóttir, varnarmaður Rosengard, mætast í 8-liða úrslitum.

Sigurliðið í þeim leik mætir Chelsea eða Wolfsburg í
undanúrslitum.

Sara Björk Gunnarsdóttir og núverandi meistarar í Lyon mæta væntanlega PSG í slag tveggja risa í Frakklandi. PSG vann Sparta Prag 5-0 í fyrri leiknum í 16-liða úrslitum en síðari leikurinn er eftir.

Sigurvegarinn hjá Lyon og PSG mætir Barcelona eða Manchester City í undanúrslitum.

8-liða úrslit
Chelsea - Wolfsburg
Barcelona - Man City
Sparta Prage/PSG - Lyon
Bayern Munchen - Rosengard

Undanúrslit
Sparta Prague/PSG/Lyon - Barcelona/Man City
Bayern Munchen/Rosengard - Chelsea/Wolfsburg
Athugasemdir
banner
banner
banner