Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 12. júní 2022 10:00
Brynjar Ingi Erluson
PSG ætlar að gera tilraun til að fá Lewandowski
Rpbert Lewandowski
Rpbert Lewandowski
Mynd: EPA
Franska félagið Paris Saint-Germain ætlar að gera tilraun til að stela Robert Lewandowski af Barcelona í sumarglugganum en það er L'Equipe sem greinir frá.

Pólski framherjinn hefur ekki farið leynt með að hann ætlar sér að fara frá Bayern München í sumar en hann á ár eftir af samningi sínum í Þýskalandi.

Bayern hefur til þessa neitað því að selja hann í sumar og ætlar að láta hann klára samninginn en Lewandowski er afar ósáttur við stöðuna og hefur farið ófögrum orðum um stjórnarmenn félagsins.

Lewandowski er efstur á óskalista Barcelona og hefur umboðsmaður leikmannsins rætt við félagið og virðast allir aðilar sáttir þeim megin, en viðræðurnar við Bayern ganga erfiðlega og greinir nú L'Equipe frá því að PSG gæti reynt að nýta sér stöðuna.

PSG vill styrkja sóknarleikinn enn frekar en félagið er nú þegar með Mauro Icardi, Lionel Messi, Kylian Mbappe og Neymar í fremstu víglínu.

Félagið áttar sig á því að það gæti reynst því erfitt að fá Lewandowski þar sem Bayern vill alls ekki selja hann, en allir leikmenn eru falir fyrir rétt verð.

Manchester United er einnig sagt hafa áhuga á því að fá Lewandowski.
Athugasemdir
banner
banner
banner