Það fóru fram tveir leikir í 4. deild karla í kvöld.
Í A-riðli valtaði ÍH yfir Afríku á útivelli þar sem Pétur Hrafn Friðriksson fór á kostum fyrir lærisveina Brynjars Ásgeirs Guðmundssonar. Pétru Hrafn skoraði fimm af sjö mörkum ÍH í leiknum.
ÍH er með fullt hús í öðru sæti A-riðils eftir fjóra leiki. Afríka er án stiga á botni riðilsins.
Í B-riðli vann Kormákur/Hvöt 2-0 heimasigur gegn Álafossi þar sem bæði mörkin komu í seinni hálfleik. Kormákur/Hvöt er í fjórða sæti riðilsins með sjö stig eftir fjóra leiki. Álafoss er með eitt stig eftir að hafa spilað fimm leiki.
Afríka 1 - 7 ÍH
0-1 Pétur Hrafn Friðriksson ('37)
0-2 Pétur Hrafn Friðriksson ('38)
0-3 Pétur Hrafn Friðriksson ('56)
0-4 Bergþór Snær Gunnarsson ('62)
1-4 Cedrick Mukya ('65)
1-5 Pétur Hrafn Friðriksson ('70)
1-6 Pétur Hrafn Friðriksson ('75)
1-7 Alex Birgir Gíslason ('87)
Kormákur/Hvöt 2 - 0 Álafoss
1-0 Hlynur Rafn Rafnsson ('62)
2-0 Hilmar Þór Kárason ('69)
Rautt spjald: Þorgrímur Goði Þorgrímsson, Álafoss ('90)
Athugasemdir