Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 13. mars 2019 12:30
Elvar Geir Magnússon
Þrjú spennandi einvígi í leik Bayern og Liverpool
Hvernig mun Van Dijk ganga að halda aftur af Lewandowski?
Hvernig mun Van Dijk ganga að halda aftur af Lewandowski?
Mynd: Getty Images
Liverpool mætir Bayern München í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í Þýskalandi í kvöld. Fyrri leikurinn endaði með markalausu jafntefli.

Hvar mun leikurinn í kvöld vinnast? Liverpool Echo tók saman þrjú spennandi einvígi fyrir leik kvöldsins.

Rafinha gegn Sadio Mane
Rafinha er ekki fyrsti kostur Bayern í hægri bakvörð en mun væntanlega byrja í stað Joshua Kimmich sem tekur út leikbann.

Hvernig honum mun ganga gegn hinum sjóðheita Sadio Mane gæti farið langt með að ráða úrslitum. Hinn 33 ára Brasilíumaður mun væntanlega eiga fullt í fangi með því að ráða við hraða og auga Mane fyrir mörkum.

Ef Rafinha tekur of mikinn þátt í sóknarleiknum gæti það skapað tækifæri fyrir Mane.

Robert Lewandowski gegn Virgil van Dijk
Virgil van Dijk, sem var í banni í fyrri leiknum, hefur ekki haft undan við að taka við hrósi og lofi fyrir frammistöðu sína í hjarta varnar Liverpool.

Margir tala um hann sem besta miðvörð heims og hann getur sýnt að það sé réttnefni þegar hann mætir pólska markahróknum sem ætlar að skjóta Liverpool út úr Evrópu.

Thiago Alcantara gegn Fabinho
Bæjarar treysta á að Thiago muni sjá til þess að hlutirnir muni virka á miðsvæðinu. Hvernig mun Fabinho vegna?

Leikur Bayern og Liverpool hefst klukkan 20:00

Athugasemdir
banner
banner
banner