Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 13. mars 2021 16:38
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið Everton og Burnley: Jói byrjar - Gylfi bekkjaður
Mynd: Getty Images
Gylfi Þór Sigurðsson er á varamannabekk Everton þrátt fyrir að það vanti James Rodriguez í leikmannahópinn.

Carlo Ancelotti gerir aðeins eina breytingu á byrjunarliðinu sem gerði jafntefli við Chelsea þar sem Gylfi Þór fer á bekkinn fyrir Tom Davies. Þar mun Gylfi sitja við hlið leikmönnum á borð við Yerry Mina og Seamus Coleman.

Everton tekur á móti Burnley í ensku úrvalsdeildinni og er Jóhann Berg Guðmundsson í byrjunarliði Burnley.

Jóhann Berg hefur misst af stórum hluta tímabilsins vegna meiðsla en reynst afar mikilvægur í þau skipti sem hann er heill heilsu.

Sean Dyche gerir aðeins eina breytingu á liðinu frá síðustu umferð, þar sem Erik Pieters kemur inn í vinstri bakvörðinn í stað Charlie Taylor sem er meiddur.

Everton: Pickford, Godfrey, Keane, Holgate, Digne, Allan, Gomes, Iwobi, Davies, Richarlison, Calvert-Lewin
Varamenn: Virginia, Tyrer, King, Nkounkou, Sigurdsson, Mina, Broadhead, Coleman, Onyango

Burnley: Pope, Lowton, Tarkowski, Mee, Pieters, Brownhill, Westwood, Gudmundsson, McNeil, Vyrda, Wood
Varamenn: Peacock-Farrell, Stephens, Rodriguez, Bardsley, Long, Dunne, Brady, Benson, Nartey
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Man City 33 23 7 3 80 32 +48 76
3 Liverpool 34 22 8 4 75 34 +41 74
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Man Utd 33 16 5 12 51 50 +1 53
7 Newcastle 33 15 5 13 69 54 +15 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Bournemouth 34 12 9 13 49 60 -11 45
11 Brighton 33 11 11 11 52 54 -2 44
12 Wolves 34 12 7 15 46 54 -8 43
13 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
14 Crystal Palace 34 10 9 15 44 56 -12 39
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 34 11 8 15 36 48 -12 33
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 34 3 7 24 33 92 -59 16
Athugasemdir
banner
banner