Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   þri 13. júlí 2021 20:55
Ívan Guðjón Baldursson
Meistaradeildin: Rúnar Már og félagar unnu í framlengingu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Borac Banja Luka 2 - 1 CFR Cluj (3-4 samanlagt)
1-0 S. Vranjes ('60)
2-0 P. Moraitis ('64)
2-1 A. Chipciu ('118)

Rúnar Már Sigurjónsson lék 120 mínútur er rúmenska stórveldið CFR Cluj komst áfram í næstu umferð í undankeppni Meistaradeildarinnar.

CFR Cluj heimsótti Borac Banja Luka til Bosníu eftir 3-1 sigur í fyrri leiknum á heimavelli.

Í þetta skiptið gekk ekki svo vel, þrátt fyrir mikla yfirburði tókst CFR Cluj ekki að skora og var staðan 2-0 fyrir heimamenn eftir venjulegan leiktíma - 3-3 samanlagt og flautað til framlengingar eftir afnám útivallarmarka.

Menn voru að gera sig tilbúna fyrir vítaspyrnukeppni þegar Alexandru Chipciu, sem hafði komið inn af bekknum, skoraði og tryggði CFR áfram í næstu umferð.
Athugasemdir
banner
banner
banner