Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 13. október 2020 06:00
Victor Pálsson
Orðinn þreyttur á að vera líkt við Neymar
Mynd: Getty Images
Rodrygo, leikmaður Real Madrid, er orðinn þreyttur á því að fólk beri hann saman við stórstjörnuna Neymar en þeir eru báðir frá Brasilíu.

Rodrygo er ein af vonarstjörnumn Brasilíu en hann kostaði Real 45 milljónir evra og kom frá Santos líkt og Neymar.

Það er engin smá pressa sem fylgir því að vera líkt við svo stórt nafn en Rodrygo er hættur að taka mark á þessari samlíkingu.

„Þegar ferillinn byrjaði hjá Santos þá var byrjað að bera mig saman við Neymar, ég var kallaður nýi Neymar og Robinho," sagði Rodrygo.

„Ég hef alltaf sagst vilja vera Rodrygo og skapa mína eigin sögu. Robinho og Neymar eru goðsagnir hjá Santos og alls staðar þar sem þeir spiluðu. Ég er bara að byrja það er bara einn Neymar að mþínu mati."

„Þetta hefur alltaf fylgt mér en ég vil bara fá að vera Rodrygo."
Athugasemdir
banner
banner
banner