Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 13. nóvember 2021 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Mount og Shaw ekki með Englandi gegn San Marínó
Mynd: Getty Images
England vann Andorra örugglega með fimm mörkumg gegn engu í gærkvöldi.

Luke Shaw og Mason Mount voru ekki með en þrátt fyrir að hafa verið valinn í hópinn ferðaðist Shaw ekki með liðinu til Andorra.

Hann er að jafna sig eftir að hafa fengið heilahristing í grannaslag Manchester United gegn Manchester City. Þá verður Mason Mount leikmaður Chelsea ekki með þar sem hann er að jafna sig eftir endajaxlatöku.

Southgate staðfesti eftir leikinn að þeir verða ekki til taks er liðið mætir San Marino á mánudaginn. England þarf bara jafntefli til að tryggja sætið sitt á HM.
Athugasemdir
banner