Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 14. janúar 2023 23:48
Brynjar Ingi Erluson
„Þurfum ekki að taka myndir til að sanna vináttu okkar"
Karim Benzema og Cristiano Ronaldo eru vinir
Karim Benzema og Cristiano Ronaldo eru vinir
Mynd: Getty Images
Karim Benzema, framherji Real Madrid, harðneitar því að það andi köldu milli hans og Cristiano Ronaldo.

Real Madrid er í Riyadh, höfuðborg Sádi-Arabíu, en liðið undirbýr sig nú fyrir úrslitaleik spænska ofurbikarsins gegn Barcelona sem fer fram á morgun.

Ronaldo mætti á æfingu hjá Real Madrid og heilsaði upp á gamla liðsfélaga en engar myndir náðust af honum og Karim Benzema.

Þeir tveir spiluðu saman frá 2009 til 2018 hjá Madrídingum þar sem Ronaldo var aðalstjarna liðsins en Benzema hefur tekið við því hlutverki.

Einhver sögusagnir hafa verið um það að Benzema sé illa við Ronaldo en hann harðneitar því.

„Við þurfum ekki að taka myndir til að sanna vináttu okkar, myndirnar eru fyrir Instagram eða Twitter, sem er allt annar heimur. Við höfðum ekki tíma til að heilsast því ég var að æfa og svo fór hann strax á æfingu eftir það. Ég vonast til að sjá hann á morgun á vellinum og geta spjallað aðeins við hann,“ sagði Benzema við Marca.
Athugasemdir
banner
banner