Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 14. mars 2021 23:00
Aksentije Milisic
Rúnar lagði upp mark í sínum fyrsta leik með Cluj
Mynd: Getty Images
Rúnar Már Sigurjónsson spilaði sinn fyrsta leik fyrir rúmensku meistarana CFR Cluj í dag en hann gerði tveggja ára samning við félagið í síðasta félagsskiptaglugga.

Cluj, sem er í öðru sæti deildarinnar sem stendur, vann 4-0 heimasigur á CSM Politehnica Iasi. Rúnar kom inn af bekknum þegar um korter var eftir af leiknum.

Hann lagði upp síðasta mark leiksins en það kom þegar þrjár mínútur voru til leiksloka. Markið skoraði Ciprian Ioan Deac.

Þá var Aron Jóhannsson ekki í leikmannahópi Lech Poznan í dag sem gerði markalaust jafntefli við Piast Gliwice í pólsku úrvalsdeildinni.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner