Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 14. júlí 2021 12:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Klopp: Van Dijk og Gomez líta mjög vel út
Virgil van Dijk
Virgil van Dijk
Mynd: Getty Images
Joe Gomez og Virgil van Dijk eru byrjaðir að æfa aftur með Liverpool eftir að hafa lent í erfiðum meiðslum síðasta vetur.

„Virg og Joe munu ekki æfa tvisvar á dag þessa fyrstu daga með hópnum. Þeir eru í meðhöndlun þegar hinir taka seinni æfinguna," sagði Jurgen Klopp í viðtali sem birtist á heimasíðu Liverpool.

„Þeir líta báðir mjög vel út. Ég veit ekki hvenær við getum tekið næsta skrefið með þeim en það verður tekið á næstu fjórum viku. Það mun verða skref fram á við," sagði Klopp.

Fyrsti leikur Liverpool í ensku úrvalsdeildinni verður 14. ágúst gegn Norwich á útivelli.
Athugasemdir
banner
banner
banner