Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 14. nóvember 2021 15:00
Aksentije Milisic
Aubameyang var í viðræðum við Spurs - „Myndi frekar hætta í dag"
Mynd: EPA
Pierre-Emerick Aubameyang, fyrirliði Arsenal, sagði frá því í viðtali að hann hafi næstum því gengið í raðir Tottenham á sínum tíma, nú myndi hann hins vegar frekar leggja skónna á hilluna heldur en að spila fyrir félagið.

Framherjinn frá Gabon kom til Arsenal frá Dortmund árið 2018 og er í dag fyrirliði liðsins. Aubameyang var hins vegar í viðræðum við Tottenham á sínum tíma.

„Þú þarft ekki að spyrja mig að þessu, þú veist svarið. Ég myndi frekar hætta að spila fótbolta," sagði Aubameyang þegar hann var spurður að því hvort hann myndi frekar spila fyrir Tottenham eða leggja skónna á hilluna frægu.

„Ég var í viðræðum við Tottenham þegar ég var leikmaður St.Etienne. Ég fór að skoða völlinn þeirra, White Hart Lane. Þeir hins vegar gáfu mér aldrei loka svar, hringdu ekki aftur. Þess vegna verð ég alltaf mjög gíraður þegar ég mæti þeim."
Athugasemdir
banner