Atalanta 0 - 0 Empoli
Atalanta og Empoli gerðu markalaust jafntefli í eina leik kvöldsins í Seríu A á Ítalíu.
Atalanta var með gríðarlega yfirburði í leiknum og í raun ótrúlegt að liðið hafi ekki skorað en liðið átti 47 skot í leiknum þar af fóru átján skot á rammann.
Ótrúlegar tölur en liðið þurfti þó að sætta sig við markalaust jafntefli á heimavelli sínum í kvöld.
Lokatölur 0-0 og Atalanta í 6. sæti með 53 stig á meðan Empoli er í 18. sæti með 29 stig.
Athugasemdir