Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 15. maí 2020 22:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Man Utd að skoða tvo kosti - Jorge Mendes lykill í ferlinu
Mynd: Getty Images
Raul Jimenez, framherji Wolves, og Carlos Vinicius, framherji Benfica, eru á blaði hjá Manchester United samkvæmt Record.

Wolves er einnig sagt hafa áhuga á Vinicius. Record segir að Vinicius sé varaáætlun United og Jimenez er kostur númer eitt.

Það gæti verið erfitt að fá Jimenez því hann er metinn á allt að 100 milljónir evra, hann er ekki með neitt riftunarákvæði.

Vincius er með riftunarákvæði upp á 100 milljónir evra og er Benfica sagt vilja 60% af þeirri upphæð. Jorge Mendes, umbosðmaðurinn, hefur verið að vinna í næsta skrefi Jimenez á ferlinum og er hann að vinna í því að Vinicius verði arftaki Jimenez hjá Wolves.
Athugasemdir
banner
banner
banner