Derby County er að ræða við Frank Lampard, stjóra sinn um nýjan samning. Þetta segir Simon Stone á BBC.
Talið er að Maurizio Sarri sé á förum til Juventus og þykir langlíkegast að Lampard muni taka við Chelsea af honum. Lampard er goðsögn hjá Chelsea eftir að hafa lengi vel verið þar sem leikmaður.
Sjá einnig:
Chelsea þarf að greiða 4 milljónir punda fyrir Lampard
Stone skrifaði í dag að Chelsea væri ekki enn búið að hafa samband við Derby vegna Lampard. Derby ætlar að freista þess að gera nýjan samning við Lampard, en hann á tvö ár eftir af núgildandi samningi sínum við félagið.
Lampard var að klára sitt fyrsta tímabil sem stjóri Derby. Hann kom Derby í úrslitaleik umspilsins í Championship-deildinni og var hann hársbreidd frá því að koma liðinu upp í ensku úrvalsdeildina.
Derby County are talking to boss Frank Lampard about a new deal.
— BBC Sport (@BBCSport) June 15, 2019
Full story: https://t.co/mjzPyNHboH pic.twitter.com/mU1tXr4VYj
Athugasemdir