Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   lau 15. september 2018 15:05
Elvar Geir Magnússon
Upptaka - Útvarpsþáttur dagsins í heild
Mynd: Fótbolti.net
Það var boðið upp á öflugan og þéttan útvarpsþátt í dag á X977. Elvar Geir og Tómas Þór héldu um stjórnartaumana.

Hitað var upp fyrir bikarúrslitaleik Stjörnunnar og Breiðabliks. Heyrt var í Jóni Þóri Haukssyni og Guðmundi Steinarssyni, aðstoðarþjálfurum liðanna. Þá var Kári Ársælsson, fyrrum fyrirliði Breiðabliks, á línunni og rifjaði upp bikarmeistaratitil Blika frá 2009.

Sævar Pétursson hjá KA var í viðtali en tilkynnt var í fyrradag að Tufa yrði ekki áfram þjálfari liðsins. Einnig var rætt um íslenska landsliðið og fyrstu tvo leiki liðsins í Þjóðadeildinni.

Hægt er að hlusta á þáttinn í heild sinni á Vísi með því að smella hér


Athugasemdir
banner
banner
banner