Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 16. mars 2021 09:59
Magnús Már Einarsson
Arsenal vill halda Ödegaard
Mynd: Getty Images
Ensk blöð greina frá því í dag að Arsenal hafi áhuga á að halda Martin Ödegaard innan sinna raða á næsta tímabili.

Norðmaðurinn kom til Arsenal á láni frá Real Madrid í janúar og hefur byrjað vel með skyttunum.

Hinn 22 ára gamli Ödegaard var meðal annars á skotskónum í sigri á erkifjendunum í Tottenham um helgina.

Arsenal þarf að skoða peningastöðu sína í sumar til að sjá hvort félagið geti keypt Ödegaard eða reynt að fá hann áfram á láni.

Ödegaard kom til Real Madrid árið 2015 en hefur ekki náð að festa sig í sessi í aðalliðinu þar.
Athugasemdir
banner
banner