Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 16. maí 2018 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Davinson Sanchez skrifar undir sex ára samning
Mynd: Getty Images
Kólumbíski miðvörðurinn Davinson Sanchez var að skrifa undir nýjan sex ára samning við Tottenham.

Sanchez gekk til liðs við félagið fyrir ári síðan þegar hann var keyptur á tæpar 40 milljónir punda af Ajax.

Varnarmaðurinn er aðeins 21 árs gamall og var snöggur að venjast leikstíl Tottenham og fyllti vel í skarð Toby Alderweireld.

Hann á átta landsleiki að baki fyrir Kólumbíu og er hægt að gera ráð fyrir að hann verði byrjunarliðinu í Rússlandi.
Athugasemdir
banner
banner