Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 16. maí 2020 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Myndband: Carra með poppkorn að hlusta á Gary ræða um Tevez við Kia
Mynd: Getty Images
Gary Neville var harðorður í garð Carlos Tevez í vikunni og sagði hans nálgun á síðara tímabili sínu hjá Manchester United ekki hafa verið boðlega.

Tevez kom frá West Ham sumarið 2007 og sumarið 2009 gekk hann í raðir Manchester City. Neville vill meina að Tevez hafi farið að fíflast og verið ófaglegur í sinni nálgun. Kia Joorabchian, umboðsmaður Tevez, svaraði Neville og setti spurningarmerki við fagmennsku Neville sjálfs í greiningu sinni á hegðan Tevez.

Í gær voru svo Gary Neville og Kia Joorabchian að ræða málin í Sky Football Show og Jamie Carragher fylgdist með.

Carragher tók ekki virkan þátt í samtalinu en á myndskeiði, sem má sjá hér fyrir neðan, sést Carragher borða poppkorn eins og hann væri á eðal bíómynd.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner