U21 landsliðsmaðurinn Daníel hefur verið í lykilhlutverki hjá KA og það er blóðtaka fyrir liðið að hann sé á förum en Akureyringar eru í fallsæti eftir tap gegn HK í fyrradag.
Hinn 19 ára gamli Daníel hefur skorað fjögur mörk í 40 leikjum með uppeldisfélagi sínu KA.
Helsingborg fór upp úr sænsku B-deildinni í fyrra en þá raðaði Andri Rúnar Bjarnason inn mörkum með liðinu. Andri var seldur til Kaiserslautern í Þýskalandi á dögunum.
Helsinborg er í dag í 11. sæti af 16 liðum í sænsku úrvalsdeildinni en félagið reyndi á dögunum að fá Brynjólf Darra Willumsson frá Breiðabliki.
Þjálfari Helsingborg er fyrrum markamaskínan Henrik Larsson en hann gerði garðinn frægan með liðum eins og Barcelona, Manchester United og Celtic á ferli sínum.
Uppfært 12:02: KA hefur staðfest að Daníel sé á leið til Helsingborg.
⚽️ Knattspyrnudeild KA hefur náð samkomulagi við Sænska liðið Helsingborgs IF um kaup á Daníel Hafsteinssyni. Daníel hefur verið í algjöru lykilhlutverki á miðjunni í KA liðinu og ljóst að þetta yrði gríðarlega flott skref fyrir okkar öfluga leikmann #LifiFyrirKA pic.twitter.com/ZP10NQjXiW
— KA (@KAakureyri) July 16, 2019
Sænska úrvalsdeildarliðið IH Helsinborg virðist vera að næla í KA-manninn Daníel Hafsteinsson. Heimildir í Svíþjóð telja að hann verði jafnvel kynntur til leiks ytra á næstu dögum. Helsingborg, sem er í 11. sæti af 16 liðum í Allsvenskan. Liðið hafði áður reynt að kaupa pic.twitter.com/8aWTS2yYwu
— Skapti Hallgrímsson (@SkaptiHallgrims) July 16, 2019
Brynjólf Darra Willumsson frá Breiðabliki en ekki haft erindi sem erfiði. Þjálfari IH Helsingborg er gamli landsliðframherjinn Henrik Larsson. Á myndinni fagnar Daníel marki gegn ÍBV á Akureyrarvelli í sumar.
— Skapti Hallgrímsson (@SkaptiHallgrims) July 16, 2019