Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 16. ágúst 2018 14:53
Magnús Már Einarsson
Stjörnur í enska boltanum reyna við fagn Alli - Getur þú það?
Fagnið hjá Alli.
Fagnið hjá Alli.
Mynd: Getty Images
Fagn Dele Alli gegn Newcastle um síðustu helgi hefur vakið mikla athygli. Alli tók þar handahreyfingu sem margir eiga í basli með að gera.

Liðsfélagar Alli í Tottenham hafa reynt að leika hreyfinguna eftir í búningsklefanum fyrir æfingar í vikunni.

Í dag birtu leikmenn Manchester United myndbönd á Instagram þar sem þeir spreyttu sig.

Mauricio Pochettino, stjóri Tottenham, var spurður út í fagnið á fréttmannafundi í dag en hann segist sjálfur hafa prófað það.

„Ég prófaði þetta einu sinni og þetta var fullkomið hjá mér. Ég lofa því. Hann sagði að þetta væri stórkostlegt hjá mér," sagði Pochettino.

Hér að neðan má sjá leikmenn United og Tottenham spreyta sig í að taka fagnið.




Athugasemdir
banner
banner
banner