AEL Larissa 1 - 3 Panathinaikos
0-1 M. Johansson ('28)
0-2 M. Johansson ('63)
1-2 F. Andoni ('66, víti)
1-3 A. Chatzigiovannis ('89, víti)
0-1 M. Johansson ('28)
0-2 M. Johansson ('63)
1-2 F. Andoni ('66, víti)
1-3 A. Chatzigiovannis ('89, víti)
Ögmundi Kristinssyni tókst ekki að bjarga AEL Larissa frá tapi gegn Panathinaikos í gríska boltanum í dag.
Sænski bakvörðurinn Mattias Johansson skoraði tvisvar framhjá Ögmundi áður en albanski miðvörðurinn Fatjon Andoni minnkaði muninn úr vítaspyrnu.
Gestirnir voru betri og gerðu út um leikinn með marki úr vítaspyrnu undir lokin.
Ögmundur og félagar eru með þrjú stig eftir þrjá leiki. Panathinakos er einnig með þrjú stig þrátt fyrir að vera búið að vinna alla sína leiki, en liðið byrjaði tímabilið með sex stig í mínus.
Athugasemdir